Gúrkutíð
17.7.2008 | 11:55
Algjörar gúrkur í fréttum þessa dagana. Og eins hjá mér. Þvælist um í dásemdarfríi,- et á mig gat á hvurjum degi og svei mér þá ef þessi afslöppun og ofát hefur ekki gert mig skoðanalausa. Það er eins og heilinn hafi verið settur á "hold". Hugsa eingöngu um að slæpast, sóla mig, eta og hitta vini, vandamenn og barnabörn. Of afslappað líf gerir konu greinilega lata.....til handa og hugar ;)
Athugasemdir
VÁ. Rosalega er þetta flott mynd af þér. Hver tók hana???????kv Guðný sys
Guðný sys (IP-tala skráð) 18.7.2008 kl. 15:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.