Komin heim !!
25.5.2008 | 21:35
Ég og minni börnin mín erum komin heim eftir frækna ferð í Hafnarfjörðinn og Selfoss. Eins og fyrr segir skrapp ég inn í höfuðhreppinn á stórgóða tónleika en að öðru leyti hélt ég mig langt í burtu frá þeim voðastað ;) Gott að vera í Hafnarfirðinum og fór ég á skemmtilegan vinnufund jafnréttisskóla sem haldinn var í Lækjarskóla. Börnin undu sér hjá Lúkasi afa og Steinvöru frænku. Síðan fórum við austur á Selfoss að hitta Þórhildi Lottu, Patrek Jóhann og foreldra þeirra. Lotta litla er náttúrulega bara dásemdin ein ( set inn myndir þegar tími gefst) og þau hin líka. Cristine amma frá Þýskalandi var líka í heimsókn þannig að ég gat æft mig í þýskunni ( tíhí). Þarna snúlluðum við ömmurnar við barnabörnin og börnin og þeim hefur væntanlega liðið eins og blómi í eggi ( eða ekki,- kannske fúlt að fá ekki frið ;).
En alltaf er nú gott að koma heim aftur.............
Athugasemdir
Heima er best...voða fínt hérna í Grafarvoginum :)
Helga S (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 21:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.