Á degi verkalýðsins..og uppstigningar....
1.5.2008 | 23:01
....gerðumst við búfólk jarðar, eða þannig. Fórum í sveitina og nutum þess í botn. Sáum þrjú lömb koma í heiminn, tvílembingarnir fengu nöfnin Lúkas og Kolfreyja og einlembingurinn nafnið Dindill.
Betri gerast degir varla !!
Athugasemdir
Degir??? Hvaða
Guðmundur Bergkvist, 2.5.2008 kl. 13:21
Hvaða orðskrípi er það nú eiginlega...
Guðmundur Bergkvist, 2.5.2008 kl. 13:23
örugglega e-hvað hrikalegt skrípi,- ekki beint eintala né fleirtala,- svona eins og að segja Betri gerast Beggar ekki...og vera þá að tala um að þú værir bestur Begganna. Þetta er nú samt örugglega ekki málfarslega rétt,- en þgf. af orðinu dagur er degi. Þannig varð þetta nú tilkomið. En auðvitað átti ég að skrifa...Betri gerast dagar varla...en athugaðu að ég var náttúrulega örþreytt eftir að fylgjast með öllum þessum burði !!!
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 2.5.2008 kl. 20:03
Í höfuðið á hverjum var Dindill nefndur....Boga?
Sigþrúður Harðardóttir, 3.5.2008 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.