Dásemdin senn á enda....
13.3.2008 | 22:27
...því hetja hafsins heldur á veiðar á ný á laugardaginn ;( Sei, la, ví. Þetta er búið að vera dásemdin ein að hafa sjóarann heima,- komnar flísar á eldhúsgólfið og stigann niður og ég hef ekki eldað eina einustu máltíð né smurt í nestisbox barnanna !! Það er nú samt skondið að eins og það var mikill gestagangur hjá mér í janúar og febrúar þá hefur varla komið hingað kjaftur á meðan Bogi var heima. Jú, reyndar tengdamóðir góð og svilkona, en aðeins einn næsturgestur ( mjög ljúfur og fínn og bauð mér í leikhús og alles ). Síðan byrja gestirnir að streyma í hlað er Bogi heldur brott því von er á Steinvöru systur með alla fjölskylduna um páskana. Við systur komum sjálfsagt til með að strauja fjallið bærilega ;) og malli minn hvað ég skal knúsa litlu nöfnu mína og stóru systur hennar.
Athugasemdir
Þvílík fyrirsögn með mynd af okkur með !!! OMG......
Steinvör (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 20:00
'ubbs, ekki meint illa !!
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 15.3.2008 kl. 23:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.