Hvaða veður ??
8.2.2008 | 22:48
Við erum ekki enn farin að finna fyrir þessu vonda veðri hér á Akureyrinni,- kemur kannske í nótt !! Skal vel og vandlega gæta mín á því að halda mig heima með börnunum mínum. Reyndar fundum við fyrir veðrinu á þann hátt að það var lokað í fjallinu,- og ég sem ætlaði að eyða öllum deginum á skíðum. Því braut ég öll fyrri heit um afslöppun og tjill og er byrjuð að rudda til í bókaskápunum,- mæ ó mæ, meira að segja búin að henda gömlum glósum síðan úr Kennó 1990. ( Hvað er ég búin að flytja oft með þær ??). Missti mig síðan aðeins á hörkuútsölu upp í Hrísalundi og keypti svoldið að litlum bleikum kjólum, gagn að barnabarnið tilvonandi sé kvenkyns,- og þó,- feministinn ég get nú alveg verið það hörð að gefa litlum gæja bleikan kjól...hrmmmmppp
Alls ekki að vera á ferðinni að nauðsynjalausu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Við akureyringar ættum nú að vera vön verra veðri en i borginni þannig við ættum að vera tilbuinn ef oveður skellur á ;)
Arnar (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 01:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.