Ábyrgð foreldra.
25.1.2008 | 10:02
Ég segi nú bara halló !! eða Sæll,- eins og nú er í tísku. Hvar liggur nú ábyrgð og umhyggja foreldra. Sjá þeir ekki ef að það er kolvitlaust veður ?? Mér finnst að við getum ekki tekið allt forræði af foreldrum,- þeir hljóta að geta metið það hvort veður og færð sé með slíkum hætti að ekki sé glóra í því að senda börnin í skólann!!
Óljós tilmæli varðandi skólahald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála þér, ég var heima í morgunn með 1 veikt barn og ákvað að halda hinu heima líka
Guðborg (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 10:36
já ég er sammála ég er með börn á leikskóla, grunnskóla, og framhaldsskólaaldri og enginn þeirra fór í skólann í morgun.
Eyrún (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 10:42
Ábyrgð og umhyggja segir þú. Mín börn fóru í skólann í morgun, voru keyrð af því að veður var vont, ekki snældubrjálað,(ekki miðað við austurland). Mín ábyrgð liggur m.a. í því að kenna börnunum að þau hafi skyldu, meðal annars þá skyldu að mæta í skólann þegar hann er og þau ekki veik.
mamma í Árbænum (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 10:48
Til að það sé enginn misskilningur á ferðinni þá er ég ekkert að gagnrýna þá föreldra sem létu börnin fara í skóla í morgun,- né þá sem héldu þeim heima,- heldur beinist gagnrýnin að því að það sé e-hverra annarra en foreldranna að meta það hvort þau sendi börn sín í skóla eður ei þegar veður eru válynd ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 25.1.2008 kl. 18:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.