Mín kæra Sara
9.12.2007 | 12:44
Allt frá því herrans ári 1994- þegar Guðný systir kynnti hinar stórfenglegu Sörur Bernhards fyrir okkur hjónaleysunum þá í undirbúningi brúðkaups okkar- höfum við bakað Sörur fyrir jólin. Alveg sama hvað annað hefur setið á hakanum eða breyst- allar aðrar smákökur, laufabrauðið keypt tilbúið úr búðinni, ekki farið í messu, rjúpur ekki til og hvað eina. Sörurnar eru hinn fasti punktur jólanna hjá okkur. Í ár er engin undantekning og ég bakaði Sörur í vikunni. Notaði sömu góðu uppskriftina frá Guðnýju sys,- úr Gestgjafanum 1987. Engu breytt út af frekar en vanalega. Nema reyndar þá gerði ég aðeins tilraun með kremið. Í eina possonina ( af fjórum) setti ég slurk af koníaki !! Ammi, nammi. Þetta verður gert aftur. Síðan komu hér tvær góðar kvinnur á föstudagskveldið og við sátum við í nokkra klt. við að setja á Sörurnar. Spiluðum jólalög, kertaljós, rauðvín og súkkulaði. Getur lífið verið betra ?
Sörur úr Gestgjafanum 1987
200 gr fínt malaðar möndlur ( eða möndluflögur sem kona mylur síðan enn betur)
3 1/4 dl. flórsykur
3 eggjahvítur
Eggjahvíturnar stífþeyttar. Flórsykur sigtaður og möndluflögurnar settar út í hann og síðan eggjahvítum blandað varlega saman við.
Sett með teskeið á bökunarplötu með bökunarpappír. 180 gráður í ca 15 mín.
Krem
3/4 dl sykur
3/4 dl vatn
3 eggjarauður
150 gr. smjör
1 msk. kakó
1 tsk kaffiduft
Vatn og sykur er soðið saman í sýróp. Eggjarauðurnar þeyttar á meðan þar til þær eru ljósgular. Sýrópinu hellt í mjórri bunu saman við og hrært á meðan. Þetta er látið kólna og síðan er mjúku smjörinu bætt út í, þeytt á meðan. Kakó og kaffidufti bætt út í. Þetta látið kólna, smurt neðan á kökurnar og síðan er 250 gr suðusúkkulaði brætt og kremhliðinni dýft í.
Ég semsagt geri yfirleitt tvöfalda uppskrift í einu. Mér finnst afar mikilvægt að þeyta eggjarauðurnar afskaplega vel. Síðan geymi ég nú yfirleitt kremið í ísskáp í sólarhring áður en ég set á kökurnar. Þá er gott að vera saman við að setja á kökurnar og dífa í súkkulaðið og láta síðan kökurnar kólna í ísskáp. Koníakið setti ég út í kremið áður en ég setti smjörið. Ég er nú heldur ekkert alveg heilög á magninu. Yfirleitt þarf ég nú meira af kremi en segir til um. Núna t.d. gerði ég fjórfalda uppskrift af kökum en var með sexfalda af kremi !! ( ég var líka að bara fyrir vinkonur mínar og frumburð !!) Og ég er ekkert að mæla súkkulaðið, bræði bara 200 gr. í örbylgjunni í einu og set á og bræði síðan bara meira.....og meira...og meira.
Kökurnar er síðan gott að geyma í frysti, taka út ca klt. áður en veislan hefst og setja þá í ísskáp.
Athugasemdir
Sæl og blessuð mín kæra, þakka þér fyrir uppskriftina. Ég vildi annars bara kasta á þig kveðju og láta þig vita af nýrri bloggsíðu ..sem er www.123.is/rugludolla
og svo vantar mig tölvupóstadressu til að senda þér lykilorð á blog.central siðuna.. mitt tölvupóstfang er ragnakristins@hotmail.com þ.e.a.s. ef þú vilt lykilorðið;o)
Bestu kveðjur
Ragna popparadóttir
Ragna rugludolla (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 03:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.