Eins gott að fjallið opni...
2.12.2007 | 23:31
....næstu helgi. Ég er búin að leggja á mig þvílíkt puð um þessa helgi að annað eins hefur ekki gerst í góðra kvenna minnum. Ísskápurinn tandurhreinn, búið að þurrka af öllu og taka til í hvurju skúmaskoti. Já hér hefur sko verið skúrað út úr dyrum,- og ekki verður tekin upp tuska fyrr en á Þorláksmessu. Fjórar....já FJÓRAR smákökusortir komnar á bakka. Aðventukransinn tilbúinn, pólsku kúlurnar í gluggana, jólastyttur út um allt, Georg Jensen skraut komið í glugga sömuleiðis.
Tilgangurinn. Jú að njóta þess um næstu helgar að svífa sem léttfætt hind niður brekkur Hlíðarfjalls
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.