Að mörgu leyti ánægjulegt !!

Hefði þó viljað sjá róttækari breytingar á samræmdu prófunum.  Enn á að láta 9 og 13 ára börn sitja sveitt yfir samræmdu prófunum hvort sem þau eru kölluð könnunarpróf eður ei.  Gjörsamlega í mótsögn við allt það sem skólar og þjóðfélagið boðar um einstaklingsmiðað nám.  Og prófin í 10 bekk færð fram á haustið !!  Þetta er nú bara leikur að dagsetningum. 

Virkilega ánægjulegt að auka á veg starfsnáms og verknáms og að lagt sé til að stúdentspróf á bóknámsbrautum og verknámsbrautum verði jafngild.  Aldeilis kominn tími til.  Gaman að vita þó hvenær viðhorf þjóðarinnar breytist í þeim efnum ;)

Og lenging kennaranáms löngu löngu tímabær, en ??? hvort þessu  verði síðan frestað æ ofan í æ eins og gert hefur verið áður.


mbl.is Fjögur ný frumvörp um skólakerfið kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Já, ,,bara verknám"....

Ég vildi nú heldur taka tíu áfanga í þýskur og mannkynssögu en teikna teikningarnar sem hann Siggi minn er að vinna í sínu verknámi. Misjafnt hvað hentar fólki....allt jafn merkilegt.

Sigþrúður Harðardóttir, 27.11.2007 kl. 09:54

2 identicon

Hvad á ad ávinnast med saamraendum prófum fyrir jól....ég skil ekki. Meiri tími fyrir jólaföndur og temadagar í febrúar?

Tad tarf ad laera rosalega margt fyrir samraenduprófin og hvenar á ad laera tad ef tau eru tekinn fyrr?

Ásta Hlín (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 20:20

3 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Þegar samræmdu prófin voru í febrúar var tími fyrir betra starf án pressu frá prófum. Takk fyrir síðast á fundinum á mánudaginn.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 30.11.2007 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband