Lúkasar kjúlli

Lúkas minn sver sig í ættina og hefur unun af mat og matargerð.  Hann sver sig líka í ættina og heldur mikið með Arsenal.  Og stundum fara þessi góðu áhugamál saman. Amk kom drengurinn í gær með uppskrift sem hann fann í Arsenal blaði.  Rob the Chef´s recipe of the month.  Og vildi endilega að við prufuðum hana. 

Get sagt ykkur að þetta var góðgæti hið mesta, og fljótlegt í eldamennsku, en fljótlegheitin voru kannske vegna þess að Lúkas kokkaði með mér og Kolfreyja lagði á borðið.

Kjúklingabringur skornar í strimla,- ( ég keypti nú bara tilbúna og fulleldaða). Kjúllinn steiktur á pönnu í olíu og slatta af vel söxuðum hvítlauk.  Svartar ólífur út í, sólþurrkaðir tómatar, ferskt basil og alveg dágott magn af spínati. ( s+p að sjálfsögðu og dass af sítrónusafa yfir í lokin.)

Með þessu var að sjálfsögðu hvítlauksbrauð og tómatasalat ( tómatar, rauðlaukur,steinselja,klettasalat, fetaostur og ristaðar furuhnetur.

Og börnin borðuðu af bestu lyst.........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf jafn mikið matarfólk í þessari fjölskyldu  Held þið ættuð að finna eitthvað nafn á húsið sem tengist mat

kærar kveðjur frá Fásk

Óla Maja (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 15:08

2 identicon

mmmmmm maður verður bara svangur.. girnileg uppskrift. Já hvernig væri að nefna húsið eftir mat.. fullt hús matar... Egg! Bestu kveðjur á Eyrina af Ströndunum:o)

Ragna Popparadóttir (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 16:08

3 identicon

Fáum hann í Gestgjafann við tækifæri

Albert (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 20:25

4 identicon

nammi þessi lofar góðu.

Jóhanna H (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 22:19

5 identicon

Maður verður að prófa þennan rétt. Rosa girnilegur.

Sigga Inga (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 17:00

6 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Kannske Gestgjafavinir okkar sláist um að fá réttinn og Lúkas í blaðið ;)  Endilega komið í kapp norður............

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 10.11.2007 kl. 16:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband