Æði

Jól á KolfreyjustaðFyrst ég er nú dottin í myndirnar á annað borð,- þá skelli ég þessari hérna inn.  Mér finnst hún algjört æði.  Held að bleiku heimasaumuðu jólafötin okkar Steinvarar slái öll heimsins tískutrend út.  Ég er bara hundsvekkt að þessi föt hafi ekki varðveist, en ég fann þau amk ekki út í bílskúr.  Gætu selst á háu verði á e-bay núna.  Þær eru líka alveg all svaðalegar pæjur stóru systur mínar þarna, Imba og Guðný og Klimmi eins og skotturófa þarna í systrahópnum.  En það hefur alveg greinilega verið alveg svakalega gaman hjá okkur !!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi er algjör snilld, bleiku fötin ykkar eru frábær. Ég vissi aðþú værir extra hrifin af bleiku.

Ég er svo mannglögg Helga og sennilega er það áhugi að finna út hverjir eru hvað á myndunum,finnst það mjög gaman.

Knús til ykkar.

Jóhanna H (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 11:22

2 identicon

Hehheheheheh snilldarmynd:)Anna Þórhildur er alveg eins og pabbi sinn og Kolfreyja eins og þú:)Bestu Kveðjur norður.....

Guffa (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband