Amma og afi
3.9.2007 | 10:30
Töluvert skondið ;) Við hjónin fórum á Blönduós og börnin okkar urðu eftir þarí pössun hjá ömmu og afa. Við slengdumst á suðurlandið,- til Kjartans og Vronyar og sendum þau út á djammið og fórum í ömmu og afahlutverkið og pössuðum Patrek Jóhann. Það gekk nú náttúrulega ljómandi vel, en hann varð svolítið móðursjúkur þegar leið á nóttina þannig að afi og amma skiptust á að láta hann sofa í fanginu á sér,- minna um svefn hjá okkur........en hvað um það,- öllu fórnandi fyrir barnabarnið, meira að segja mínum dýrmæta nætursvefni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.