Iðrunarfullur með afbrigðum
30.8.2007 | 21:22
Afskaplega var hann iðrandi ungi maðurinn sem var n.b. bæði í Íslandi í dag og Kastljósi í kvöld. Dauðsá eftir því að hafa lamið hinn og þennan. Missti sig bara, enda stuttur í honum þráðurinn. Og yndislegu ungu fjölmiðlapiltarnir,- þráspurðu ofbeldismanninn hvort hann þyrfti nú ekki að fara að gera e-hvað í sínum málum. Jú, þetta er botninn sagði hinn iðrandi, ungi maður. Ohhhh,svo sætt ;) Ef þetta er nú ekki dúllukynslóðin þá veit ég bara ekki hvað.......
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.