Letilíf
23.7.2007 | 15:55
Hef aldrei áður held ég upplifað aðra eins leti og nú. Hef varla gert handtak alla helgina,- vaki lengi, lengi frameftir og sef til hádegis,- ásamt börnunum. Dinglast síðan eins og ráðvilltur xxx um húsið og langar að gera e-hvað en enda alltaf upp í sófa með vin minn Potter !! Enn bíða vetrarfötin eftir sorteringu en það fer nú að verða ?? hvort það borgi sig nokkuð að pakka þeim niður héðan af
Þarf nú að fara að rífa mig upp á rassinum,- kannske ég fari út og skelli annarri umferð á gluggakarmana..................eða bara fer upp í sófa með Potter
Athugasemdir
hér á austurlandinu má segja að við séum enn að nota vetrargallann;( Í dag dugði ekkert minna en flíspeysan og úlpa utan yfir...
Gunna (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 20:28
Skítt með vetrarfötin...málið er að slaka á og gera helst ekki neitt!!! Kveðja úr sólinni!!
Guðrún S Sigurðardóttir, 23.7.2007 kl. 23:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.