Á meðan lífið er...
3.7.2009 | 09:15
...fótbolti hjá mér er það Icesave hjá alþingi. ( Held það sé svoldið skemmtilegra hjá mér). N1 mótið er alveg á fullu hér á Akureyri og Lúkas spilar og spilar,- tapar sumum, vinnur aðra og gerir líka jafntefli. Og ég horfi á, hvet og hoppa á hliðarlínunni,- og skammta síðan öllum þessum gaurum mat, bara gaman hjá okkur. Alþingisfólkið ræðir Icesave málið og enn og aftur er eins og að það séu bara tvö lið á alþingi. Get ekki séð að kosningarnar í vor hafi nokkru breytt þar um,- og hin nýja borgarahreyfing sem ætlaði nú aldeilis að innleiða ný vinnubrögð á alþingi tekur upp sömu vitleysuna og hefur verið við lýði þar í alltof mörg ár. Vera á móti,- bara af því að þau eru ekki í stjórnarliðinu !! Mér finnst með ólíkindum ef að Icesave verður afgreitt með atkvæðum stjórnar á móti stjórnarandstöðu. Trúi ekki öðru en að e-hverjir í stjórn séu ekki sammála samningnum,- og að einhverjir í stjórnarandstöðu séu sammála honum. Enn og aftur,- þoli ekki þessa liðsskiptingu á Alþingi. Það er mjög eðlilegt að hafa liðsskiptingu hér á N1 mótinu,- en alþingi Íslendinga á ekki að vera í þeim gír, hvað þá á þessum tímum. Verðum að vinna saman að því að rífa landið okkar út úr þessari "kreppu", þetta er ekki fótboltaleikur !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)