sólin...
13.7.2009 | 13:07
...heltók mig í heila viku. Byrjaði í sumarfríi 1.júlí og sólin hefur yljað mér stanslaust síðan. Fyrstu fjórir dagar í fríi voru nýttir í fótboltamót þar sem foreldrar 5.flokks KA unnu við matarskömmtun o.fl. Síðan var bara legið í sól þar til í dag. Kreppupallurinn minn nýttur til hins ýtrasta,- en ég kalla hann kreppupall því í hann var nýtt það efni sem til var á víð og dreif í garðinum okkar. Hellur og stiklur !! og hann er bara svo fínn. Það hefur verið svolítið gestarí,- sem okkur í Löngumýrinni finnst bara gaman. Margir vinir Kolfreyju að austan hafa gist,- Mist, Bjarki, Jón Bragi, Ásgeir og Sara,- þannig að vindsængin hefur verið vel nýtt, og foreldrarnir komið í kaffi, rautt og mat og alles sumir hvurjir. Nú er Bogi kominn heim í 5 daga stopp,- og á meðan er ekki sól,- nema í hjörtum okkar sko ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)