Til skammar...

...hve ég er orðin löt hér á blogginu.  Ætla samt ekki að taka fingur af lyklaborði heldur hressa mig við í þessu enda búin að blogga síðan í snemma á þessari öld.  Byrjaði að mig minnir 2002 í Þorlákshöfn,- rétt áður en ég fór austur á Fáskrúðs hinn fagra.  Bloggletin núna stafar kannske að e-hverju leyti af snjáldurskinnunni,- aðallega skraflinu þar !!  Síðan er bara búið að vera svoldið mikið að gera,- vinna, börnin,-maturinn,-þvotturinn,-skúringarnar og þess háttar og síðan þarf ég alltaf að fara annan hvurn dag og setja loft í annað afturdekkið á bílnum.  Já,- þar kom það.......þess vegna hef ég ekki haft tíma til að blogga,- þetta loftvesen með dekkið- en það er búið að fara þrisvar í viðgerð og nú tími ég ekki meir,- naglarnir gengnir vel inní og ég býð bara eftir að snjóa leysi og ég geti sett sumardekkin undir,- þá fáið þið sko bloggfærslur á færibandi.............

c_users_herdis_pictures_2008_april_mogginn_dalsa_img_7058


Bloggfærslur 27. mars 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband