Frábært
14.9.2008 | 20:12
Fyllti fjörutíuogþrjú ár í dag. Þegar kona er orðin svona gömul en ekki grá ( var í litun fyrir helgi altsvo) þá er nú ekki verið að halda brjálað afmælispartý. Í stað þess hélt ég ásamt Kolfreyju, Lúkasi, Ægi vini Lúkasar og Ingu mömmu hans í fjallgöngu. Gengum á Súlur í fínu veðri ( fyrir utan rok á tindinum....var varla stætt) og þau sungu afmælissönginn fyrir mig á toppnum. Það var náttúrulega toppur dagsins ;)
Sjáið tindinn.....þarna fór ég !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)