Snyrtivörur !!
11.9.2008 | 00:13
Blessuð konan hefur greinilega verið heilaþvegin af snyrtivöruframleiðendum ( eins og við alltof margar) og trúað því að hún hreinlega YRÐI að nota Dr. Hauschka hreinsimjólk,- amk hreinsimjólk yfir höfuð. Eins og vatn sé ekki nógu gott ;) Þetta hlýtur að hafa verið í lok maí og ellilífeyririnn uppurinn. Segir þetta okkur ekki e-hvað um upphæð ellilífeyris ? Ekki hefur blessuð konan neinn lífeyrissjóð að leita í þar sem hún er af þeirri kynslóð sem var heima og gætti bús og barna, síðan skildi karlinn við hana sextuga og hún sér ekkert af lífeyrnum hans . Tóm eymd og volæði ( já, ég hef ríkt ímyndunarafl ).
En án gríns,- snyrtivöruframleiðendur hafa heilaþvegið alltof margar konur,- og eru núna reyndar að hasla sér völl í heilaþvotti á karlpeníngnum ( þetta í er vegna áhrifa Laxness sem ég les núna í massavís). Og líka án gríns,- þá eru alltof margar konur með alltof lág eftirlaun og engan lífeyri því þær unnu heima og borguðu því ekki í lífeyrissjóð.
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela snyrtivöru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)