Gott að hann lúrir
16.6.2008 | 15:26
Það er nú aldeilis fínt að bjössi lúrir núna. Og aldeilis gott að hann stökk ekki á stúlkuna sem fann hann. Ég get nú ekki séð fyrir mér hvernig á að vera hægt að fanga hann lifandi,- finnst trúlegast af öllu að hann verði einnig deyddur. En hrópa samt húrra ef hitt tekst en súta það ekki heldur ef hann verður drepinn.
![]() |
Allt í biðstöðu" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
úti, úti,úti
16.6.2008 | 00:39
Nú er ég búin að dvelja svo mikið úti við síðustu vikuna að ég get ekki hætt ;) Heimilið í þokkalegri rúst en ég fór samt út og sló garðinn,- rústaði fíflum eins og berserkja og ætla að halda áfram á morgun. Nú verður mér alveg sama þó rigni,- það kemur aldrei til með að rigna eins mikið og á þriðjudaginn síðasta í kanóferðinni........og svo á ég núna þennan fína norska sjóhatt ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)