Hvað er jólaskraut?

Varð yfir mig glöð í morgun þegar ég sá auglýsingu frá Húsasmiðjunni/Blómaval ( Blómasmiðjan !!) um 20 % afslátt af ÖLLU jólaskrauti í dag.  Í gær uppgvötaði ég nefnilega að Ikeakransinn logaði bara á 1/4 og því var kjörið tækifæri að finna  nýtt jólaskraut í eldhúsgluggann.  Ég lagði að sjálfsögðu leið mína í Blómasmiðjuna og eftir mikið puð við að finna hið rétta skraut ( Það var sko puð því að gluggajólaskrautið hangir allt uppi á einum stað til sýnis en ekkert er vísað í hvaða hillu má finna skrautið) þá skeiðaði ég að afgreiðslu ( valdi geysifagra jólastjörnu) .  Þar var mér tjáð að afslátturinn gilti ekki fyrir stjörnuna því hún væri ljós og það hefði verið tekið fram í auglýsingunni að jólaljós væru ekki á afslætti. ALLT jólaskraut er semsagt ekki jólaljós !!  Ég vildi nú ekkert fara að rengja drenginn en mundi ómögulega eftir þessu og sagði í hálfkæringi að það hefði þá vísast verið mjög smátt letur.  Keypti því ekki neitt....þarna heldur fór í Hagkaup og fékk fína jólaljósakúlu á 30% afslætti ( þar telja þeir semsagt að jólaljós sé jólaskraut ;) .  Þegar ég kom heim þá fletti ég Fréttablaðinu aftur, fann auglýsinguna á bls 23 og sorrý,- ég finn bara ekki þetta um jólaljósin séu ekki jólaskraut !!  Það vantar alveg í mitt blað.  OK ég veit ég þarf lesgleraugu en ég brúkaði þau,- pússaði og alles.

Á morgun ætla ég að fara út í Húsasmiðju/ Blómaval með auglýsinguna og reikning fyrir bensíni og þeim tíma sem ég eyddi við að eltast við PLAT auglýsingu !!  og fer síðan aldrei aftur í þessa búð.

 

Að öðru leyti átti ég ljúfa helgi,- bakaði eins og berserkur í gær....kornflexkökur,Sörur og súkkulaðibitakökur.  Skreytti smá,- og tók til,- og síðan komu góðar stöllur mínar hingað og við settum á Sörurnar í gærkveldi, slúðruðum og sötruðum rautt.  Í dag var hin mesta leti í gangi,- bara smá konfektgerð og síðan semsagt klukkutímaeyðsla í helv....HúsaBlómasmiðjuvali.

Alveg elska ég Sommerþættina ;)


Bloggfærslur 30. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband