Merkilegt hvað...

..þessi blessaði tími líður hratt.  Júlí alveg að fara að bresta á og júní varla byrjaður !!  Allt sem ég ætlaði að afreka í sumar er enn ógert!!  engin fjallganga, vetrarfötin/vettlingar/húfur og ullarsokkar og meira að segja skíðagleraugun enn í forstofuhillunum og sólarvörnin grafin inn í geymslu.  Þetta átti að verða orðið öfugt strax í byrjun sumars.  Reyndar hafði ég gengið frá nokkrum vetrarúlpum inn í geymslu en þurfti um daginnn að grafa þangað inn eftir þeim þar sem það var sk...kuldi!! En bráðlega verður bót á, ég lofa !!  Fer í sumarfrí e. rúma viku og þá verður nú tekið á skápunum.......

Bloggfærslur 28. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband