Júní...

...hefur verið heldur strembinn,- Bogi fór á sjóinn og þá varð ég auðvitað veik ;(  Kvefpestin yfirtók mig og þetta hefur ekki verið gaman,- ekki bætti úr skák að Kolfreyja mín fékk kokka í heimsókn,- en ekki neina sem elda dýrindisveislur heldur streptakokka.  Því erum við mæðgurnar búnar að vera heima þessa vikuna og erum satt best að segja eins og eymingjar !!  Lúkas geysist aftur á móti um grundir...er í sumarlestri frá 9-12:30 og í listasmiðju frá 13-17 !!  Hann heldur því upp lífsfjöri heimilisins..............só long....

Jæja þá...

Ætlaði nú að vera í bloggpásu þetta sumarið,- enda búin að blogga síðan haustið 2002!! En ætli ég sé ekki orðin háð þessu blessaða bloggi.  Þá er um að gera að prófa nýtt og því er ég hér á hinu víðfræga Moggabloggi !! Þeir sem mig þekkja vita að ég hef ætíð verið svolítið nýjungagjörn !!

 


Bloggfærslur 21. júní 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband