Að mörgu leyti ánægjulegt !!

Hefði þó viljað sjá róttækari breytingar á samræmdu prófunum.  Enn á að láta 9 og 13 ára börn sitja sveitt yfir samræmdu prófunum hvort sem þau eru kölluð könnunarpróf eður ei.  Gjörsamlega í mótsögn við allt það sem skólar og þjóðfélagið boðar um einstaklingsmiðað nám.  Og prófin í 10 bekk færð fram á haustið !!  Þetta er nú bara leikur að dagsetningum. 

Virkilega ánægjulegt að auka á veg starfsnáms og verknáms og að lagt sé til að stúdentspróf á bóknámsbrautum og verknámsbrautum verði jafngild.  Aldeilis kominn tími til.  Gaman að vita þó hvenær viðhorf þjóðarinnar breytist í þeim efnum ;)

Og lenging kennaranáms löngu löngu tímabær, en ??? hvort þessu  verði síðan frestað æ ofan í æ eins og gert hefur verið áður.


mbl.is Fjögur ný frumvörp um skólakerfið kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband