Afgreiðslufólk !!

Heyrði um daginn frábæra sögu um konu sem var að versla í Bónus, ost og smjer. Hún kom með góssið að kassanum og sagði við strákinn sem var að afgreiða "ég ætla að fá hvoru tveggja". Stráksi varð undurfurðulegur á svip og góndi og glápti í kringum sig, þá kallar afgreiðsluguttinn á næsta kassa.... " ég lenti í þessu í gær, þetta þýðir að hún ætlar að fá bæði"  !!!   Þessi saga er náttúrulega ansi góð, en mér fannst hún nokkuð ótrúleg. 

I_Heart_ToastSíðan kom tengdamóðir mín góð hingað á Akureyri í dag.  Hún brá sér í Húsasmiðjuna, spyr þar afgreiðslustúlku hvort þar fáist brauðrist, stúlkan horfir furðulega á hana, snéri sér við og galaði á yfirmann sinn..."heyrðu, er til brauðrist? Ég veit bara um ristavélarnar..."

ÓMG,- skyndilega varð Bónussagan ekkert ótrúverðug lengur.


ÆÆÆÆ

Ekki alveg laust við að frúin finni fyrir harðsperrum í dag Blush

Bloggfærslur 2. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband