Dásamleg börn !!
15.11.2007 | 18:01
Fékk mér kúfaðan disk af fiskibollum og grænmeti í dag og settist með nokkrum kátum krökkum inn í matsal. Einn hafði orð á því hvað ég væri með mikið á disknum !! Þá sagði annar,- það er nú ekki skrítið, hún þarf nú að borða mikið, hún er í svo erfiðri vinnu !!!
p.s. mér finnst nú vinnan mín bara skemmtileg ;) en gott að hafa ástæðu fyrir græðginni....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Voru þær ekki allar börn??
15.11.2007 | 17:45
4-13 ára. Hvaða þrjár þeirra voru ekki einungis börn ?? Ég er alveg ofan dottin,- samkvæmt mínum skilningi þá eru þær allar börn. Hafa dómarar e-hverja aðra skilgreininu á börnum en við hin ? Algjörlega til háborinnar skammar þessi dómur. Ég veit e-lega ekki hvað dómstólar eru að fara....og get hreinlega ekki skilið það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)