Fallegi fjörðurinn minn !!

Ég á einn fallegan fjörð,- í huganum altsvo- og á hann aldeilis ekki ein,- heldur með öllum Fáskrúðsfirðingum.  Á mánudagskveldið renndi ég austur, alein en samt ekki, því með mér voru Eyvör,Lisa Ekdahl,Lay Low, Norah Jones og Emiliana Torrini ( Bogi sagði að þetta væri greinilega kerlingaferð !!).  Gott að keyra svona alein með góða músík í botni og hugsa, ja...eða hugsa bara ekki.  Það var gott að koma í fjörðinn fagra, en óumræðilega tregafullt því ég var að fylgja til grafar honum Magna fyrrum nemanda mínum, fjörkálfi hinum mesta.  Fjörðurinn var svo fagur, en svo hnípinn, skrítið hvernig náttúran tekur þátt í sorgum mannabarna sinna.  Útförin var afskaplega falleg og eftirminnileg.  Óumræðilega erfið, en samt yndisleg.  Tónlistin dásamleg og minningarorð sr. Hólmgríms lýstu honum Magna svo vel.  Það var gott að geta faðmað þau mætu hjón Björg og Óa og líka að knúsa alla þessa frábæru krakka sem voru að missa svo góðan félaga.  Þau standa svo vel saman þessi ungmenni og vonandi ná þau að vinna úr sorgarferlinu saman og styðja við þann sem lifði af slysið. 

 Þessa mynd af Fáskrúðsfirði fékk ég á síðunni  http://faskrudsfjordur.123.is

30.sept%20500


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Helga. Fallega skrifað hjá þér.

B.Kv. Maja

María S.Sigurbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 13:29

2 identicon

Mikið hefði ég viljað renna í fjörðinn fagra með þér og þessum ágætu samferðarkonum þínum. Það er alltaf svo erfitt að vera í burtu að "heiman" þegar svona hræðilegir atburðir gerast. Ég hefði svo mikið viljað fylgja töffaranum til grafar.

Helga S (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 22:08

3 identicon

Mikið er nú gott að eiga fjörð með svona mörgum. Samhugur gerir vart við sig víðsvegar um landið þegar atburðir á borð við þennan eiga sér stað og þrátt fyrir erfiðar aðstæðurnar þá er það sér í lagi notalegt að finna hversu sterkt við tengjumst öll.

Tek í sama streng og þú, vonandi finna þau styrk til að takast á við sorgarferlið og vera stytta hans sem lifði af slysið.

Bergdís Ýr Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 00:14

4 identicon

Fallega skrifað Helga

Aldís Fernández (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband