Enda kveldmatur....

......og Akureyringar eru heima hjá sér í kveldmat.  Það er ég nú búin að margreyna,- flott að fara í sund um kveldmatarleytið,- í Hagkaup,- í Bónus/Nettó rétt fyrir kl. 19 o.s.frv.  Og ég fór að kjósa kl. 19,- rann beint inn í kjörklefann og merkti samviskusamlega við S-ið ;)
mbl.is Dregur úr biðröðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokaorð Jóhönnu...

...segja allt sem segja þarf.  Ef Samfylkingin verður leidd til öndvegis í þessum kosningum, þá mun ríkja hér réttlæti og jafnrétti á næstu árum Smile
mbl.is Lokaorð formanna til kjósenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dásemdardúllan mín...

Kolfreyja Sól segist hreinlega verða að hafa kveikt ljós þegar hún fer að sofa.  Síðan getur hún ekki sofnað vegna birtunnar og setur á sig svefngrímu ;)  Bara dásemdin ein.....

kolfreyja


tuttuguogfjögur...

...ár síðan frumburðurinn kom í heiminn.  Guðný,- manstu ?

 

PB210112

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Snjáldurskinna !!

Ótrúlega margir virðast vera á snjáldurskinnu,- og ótrúlega margir virðast vera með neikvætt viðhorf til snjáldurskinnu.  Ég heyri ýmsar sögur um hjónaskilnaði sem verða vegna snjáldurskinnu,- um fólk sem er svo gjörsamlega háð snjáldurskinnunni að það varla getur sofið né borðað og varla unnið.  Þegar ég inni viðmælendur mína eftir nánari útskýringum....svosem...hvur? og hvar?  Þá verður fátt um svör. Ja, ég heyrði þetta bara, já og svo er fólk að setja allskonar inn eins og ...var að baka...kvöldmatur o.s.frv. sem engum kemur svosem við.  Hvað er málið?  Er ekki allt í lagi að fólk skrifi að það baki,- borði,- hoppi,- sofi.  Ég á nokkur hundruð vini á snjáldurskinnu og hef hingað til ekki orðið vör við að snjáldurskinnuvinir mínir hafi skilið unnvörpum,- eða missi svefn og heilsu eða sinni ekki vinnu og fjölskyldu.  Mér finnst aftur á móti mjög gaman að vera í meiri tengslum við systur mínar,- vita hvað þær eru að bralla svona dags daglega....og síðan er svo auðvelt að senda póst á þær allar í einu. Mér finnst líka mjög gaman að vera komin í meiri tengsl við ættirnar mínar,- skólasystkini úr grunnskóla- gamla sveitunga,- fyrrum frábæra nemendur mína,- og samkennara og að ég tali nú ekki um ættingja í Ammeríku og fyrrum vinnufélaga á MF Norrönu sem margir hvurjir eru Færeyingar og ég hef ekkert samband haft við síðan í þá gömlu, góðu, veit fyrir víst nú að þegar ég fer til Færeyja þá fæ ég góðan kaffisopa á mörgum heimilum...... og að skoða myndirnar hjá öllum þessum snjáldurskinnvinum mínum,- bara tær snilld. 


Sjálfstæðu ríki?

Alveg finnst mér með ólíkindum þetta tal um sjálfstæði og ósjálfstæði.  Dettur e-hverjum í hug að Danmörk sé ekki sjálfstætt ríki,- eða Bretland,- Frakkland,- Þýskaland o.s.fv. Samt eru þessi ríki í Evrópusambandinu.  Ég held að Ísland hljóti að verða áfram sjálfstætt ríki þó það gangi í Evrópusambandið,- það er ekki verið að tala um að við afsölum okkur sjálfstæðinu frekar en þau ríki sem nú þegar eru í Evrópusambandinu !!
mbl.is Segir Samfylkinguna að einangrast í ESB-umræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

páskahátíðin

Búin að eiga yndislega hátíð hér í Löngumýrinni.  Skelltum okkur á skíði á skírdag í glampandi sól og blíðu, fékk fullt af freknum.Um kveldið blésum við úr eggjum og máluðum, hengdum allt á páskagreinarnar okkar.  Virkilega gaman að horfa á egg sem börnin mín hafa málað og öll hin gömlu sem ég og Steinvör máluðum i okkar barnæsku.  Hinn langa föstudag var tekið á þrifum og bakað og bakað og síðan fór ég á himneska tónleika í Akureyrarkirkju nálægt miðnætti. Um nóttina komu gestir að sunnan,- Kjartan Þór, Vrony og Þórhildur Lotta mættu á svæðið en Patrekur Jóhann var kominn áður til ömmu. Þarna var ég því með alla afkomendur í húsi + tveir hundar+tveir hamstrar og fjórir fiskar. Við Kolfreyja fórum síðan í veislu í Ketilhúsinu hjá Önnu Richards og sáum frábæra sýningu þar sem Anna dansaði af hjartans list eins og henni einni er lagið.  Við skeiðuðum síðan öll inn í höll og horfðum á Evu hans Kjartans hennar Guðnýjar keppa í fitness. Páskadaginn sjálfan var bara dingl og dangl.  Farið niður í fjöru og síðan inn í Kjarnaskóg.  Páskaegg etin af mikilli græðgi ;) Um kveldið mokuðu börnin trampolinið upp úr skafli og hafa hoppað síðan.  Láta ekki á sig fá þó snjókorn falli af himnum ofan..........halda bara að vorið sé komið ;)

3easter-2


sá halti

Ég er ekki að skilja af hverju haltur og illa leikinn framsóknarflokkur opnar ekki bókhald sitt 2006.  Það hvarflar svona að mér að þó svo að það líti út fyrir að þeir séu að skjóta sig í halta fótinn þá telji þeir það skárra en hitt !!  og hvað segir það okkur ?

Leiðindamál....

...og á versta tíma segir formaðurinn.  Já, voðalega leiðinlegt að við létum líklega múta okkur segir formaðurinn og auðvitað hrikaleg tímasetning á því þegar upp komst um glæpinn svona rétt fyrir kosningar.  Ég vil nú segja að þetta mútumál komi upp á besta tíma svo við kjósendur sjáum hvernig siðferðið er í næstminnsta fjórflokknum og getum kosið eftir því !!
mbl.is Þingflokkurinn á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt ár

Í dag er eitt ár síðan hún mamma mín dó.  Mér finnst þessi tími hafa liðið hratt og líka hægt.  Enn er ég svona að átta mig á því að eiga hvorki föður né móður á lífi.  Það var öðruvísi að missa mömmu en pabba, aðallega held ég þó að vegna þess að þegar pabbi dó þá höfðum við mömmu.  En eftir að hún dó þá var engin fyrri kynslóð að halla sér að.  Nú erum við bara fullorðna fólkið.  Ég verð samt ævarandi þakklát að hafa átt þau pabba og mömmu í 35 og 43 ár.  Betri foreldra hefði ég ekki getað hugsað mér.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband